Viðskiptaskilmálar

Almennt
Allar upplýsingar á vef Járn og Glers, þmt. Birgðastaða, verð osfrv. eru birt með fyrirvara um villur. Járn go Gler áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, breyta afhendingartíma osfrv. Varan er eign Járn og Glers þar til hún er að fullu greidd. Af vasnkilum reiknast dráttarvexstir frá gjalddaga.

Afhending vöru
Járn og Gler dreifir vörum til fyrirtækja sem eru í reikningsviðskiptum við fyrirtækið og eru á Höfuðborgarsvæðinu. Öllum öðrum pöntunum er dreift af Póstinum. Gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vöru frá Póstinum. Skilmálar Póstsins eru aðgengilegir á vefsíðu fyrirtækisins. Skilafrestur
Kaupandi hefur 30 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi og í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með.

Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og/eða viðgerð í samræmi við lög um neytendaábyrgð.

Netverð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

Skattar og gjöld
Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Sendingarkostnaður
Sendingarkostnaður er birtur við pöntun vöru og fer eftir afhendingarmáta sem viðskiptavinur velur.

Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Varnarþing
Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um neytendasamninga nr 16/2016 og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 16/2016 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað.

Skilareglur
Ef skila á vöru í verslun Járn og Glers skal hafa samband við næsta starfsmann þegar komið er inn í verslunina. Einnig er hægt að senda vöruna með flutningsaðila í verslun Járn og Glers. Kostnaður (svo sem sendingar kostnaður) við að skila vörunni er greiddur af kaupanda.

Við vöruskil skal framvísa reikning fyrir vörukaupunum.

Seljanda er heimilt að meta hvort varan sé í söluhæfu ástandi þegar tekið er við henni aftur. Vara skal vera í upprunalegu ástandi til þess að hægt sé að skila henni, þ.e. að umbúðir og vara séu óskemmd, fylgihlutir og leiðbeiningar séu með vörunni ef um slíkt er að ræða.

Séu vöruskil innan 30 daga frá dagsetningu kassakvittunar, er gefin út inneignarnóta eða vara eindurgreidd inn á greiðslukort viðkomandi.

Skilaréttur gildir ekki um vörur sem keyptar eru á útsölu.

Starfsmönnum er heimilt að neita móttöku skilavöru og endurgreiðslu á vöru ef kassakvittun er ekki framvísað.

Skil á vörum sem keyptar eru í gegnum viðskiptareikning eru kreditfærð á viðkomandi viðskiptareikning.

Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Greiðsluskilmálar

Greiðslukort
Greitt er með kreditkorti eða nýjum debetkortum með 16 stafa númerum. Greiðsla fer fram í gegnum Borgunar/Salt sem uppfyllir allar öryggiskröfur. Allar greiðslur fara í gegnum 3D Secure, sem er staðfestingaraðferð frá VISA og MasterCard til að auka öryggi í netviðskiptum fyrir söluaðila og korthafa.

Síminn Pay – Léttkaup
Pantanir yfir 10.000 kr. er hægt að greiða með Síminn Pay – Léttkaup.
Pay er greiðslulausn frá Símanum og er í boði fyrir alla. Appið virkar fyrir öll fjarskiptafyrirtæki og banka, og virkar því fyrir öll íslensk debet- og kreditkort. Með Síminn Pay getur þú dreift greiðslum í allt að 36 mánuði.
Appið er aðgengilegt öllum snjallsímum sem eru með Android eða iOS stýrikerfi.
Þú sækir um Léttkaupskort í Síminn Pay appinu og greiðir með því hjá söluaðilum. Þá hefur þú allt að 14 daga til að greiða fyrir vöruna í appinu eða dreifa greiðslum í allt að 36 mánuði.

Aur vefposi
Viðskiptavinir borga með því að slá inn símanúmer í stað þess að þurfa slá inn kortanúmerið og gildistíma.

Reikningsviðskipti
Fyrirtæki geta komist í reikningsviðskipti við okkur. Hægt er að hafa samband í síma 585-8900 eða senda póst á [email protected]. Gera má ráð fyrir að það taki í það minnsta 1 virkan dag að stofna til reikningsviðskipta.

Persónuverndarstefna

Járn og Gler hefur það að markmiði að tryggja trúnað og öryggi allra persónuupplýsinga sem unnið er með hjá fyrirtækinu. Járn og Gler fylgir lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga (Persónuverndarlög linkur – https://www.althingi.is/altext/148/s/1296.html).
Persónuvernd og öryggir er haft að leiðarljósi í allri meðferð upplýsinga um viskiptavini Járn og Glers og Ber Járn og Gler ábyrgð á þeim gögnum sem fyrirtækið safnar.

Söfnun og meðhöndlun persónuupplýsinga
Járn og Gler safnar upplýsingum um starfsmenn, viðskiptaivni og birgja sem fyritækinu er skylt að varðveita í samræmi við lög og reglur, samninga, samþykki hins srkáða eða vegna annarra lögmætra hagsuma ábyrgðaraaðila.
Járn og Gler safnar persónupplýsingum um viðskiptavini til að:
– Veita viðskiptavinum aðgang að vörum og þjónustu í samræmi við ákvæði viðskiptasamnings.
– Tryggja þjónusta sé að þörfum viðskiptavinar.
– Til að miðla til viðksiptavina upplýsinugm í markaðslegum tilgangi.
Járn og Gler safnar einungis upplýsingum sem nauðsynlegt þykir til þess að geta veitt viðkomandi aðila þjónustu eða vöru.
Járn og Gler nýtir aldrei persónuupplýsingar í öðrum tilgangi en þeim sem þær voru safnaðar fyrir. Fyrirtækið geymir aldrei persónuupplýsingar lengur en nauðsynlegt þykir. Járn og Gler miðlar ekki persónuupplýsingum til þriðja aðila nema með fengnu samþykki.
Vefur Járn og Glers notar vafraköku. (hér er ég smá lost í útskýringum).

Járn og Gler mun leggja áherslu á að tryggja að varðveisla persónuupplýsinga sé háttað á sem öruggan hátt til þess að vernda þær persónuupplýsingar sem félagið hefur undir höndum.

Viðskiptavinir eiga rétt á að fá aðgang að þeim persónuupplýsingum sem við kunnum að hafa um þá. Þeir geta líka í sumum tilvikum átt rétt á að upplýsingar verði leiðréttar eða þeim eytt.

Persónuvernd heldur úti upplýsingavef fyrir almenning: https://www.personuvernd.is/einstaklingar.