M550 HiTack Alhliða kítti

Vara væntanleg

OTTOCOLL® M 550 HiTack – Alhliða kítti og lím sem hentar fyrir flest allt

OTTOCOLL® M 550 HiTack frá OTTO Chemie er öflugt alhliða hybrid lím og kítti sem hentar fyrir flest verkefni, bæði innan- og utandyra. Varan er sérstaklega þekkt fyrir mjög mikla upphafsviðloðun (HiTack), sem gerir oft kleift að líma án þess að nota skrúfur, nagla eða aðrar festingar meðan límið harðnar.

Helstu kostir:

  • Alhliða lím og kítti fyrir fjölbreytt verkefni.
  • Mjög mikil upphafsviðloðun.
  • Mikil teygja og sveigjanleiki eftir herslu.
  • Hentar fyrir náttúrustein án þess að valda blettum eða mislitun.
  • Festist vel á tré, málma, gler, stein, keramik, plast og mörg önnur efni.
  • Hægt að nota á rök yfirborð.
  • Laus við sílikon og ísócyanöt.
  • Hentar bæði innan- og utandyra.

Mikil teygja sem dregur úr sprungum
Eftir herslu hefur OTTOCOLL® M 550 HiTack allt að 250% teygju, sem þýðir að efnið getur fylgt hreyfingum í byggingarefnum án þess að springa eða losna. Til samanburðar eru mörg hefðbundin akrýlkítti oft með um 50–100% teygju, en M550 býður upp á allt að 2,5–5 sinnum meiri sveigjanleika. Þetta gerir vöruna sérstaklega hentuga þar sem búast má við titringi, hitabreytingum eða hreyfingum í efnum.

Algeng notkun:

  • Líming á gluggakistum.
  • Festing á listum og þröskuldum.
  • Líming á steini og náttúrusteini.
  • Uppsetning spegla.
  • Almennar viðgerðir og uppsetningar þar sem þörf er á sterkri og endingargóðri límingu.

OTTOCOLL® M 550 HiTack er því frábær lausn fyrir fagmenn og heimilisnotendur sem vilja eina vöru sem límir, þéttir og fylgir hreyfingum í efnum án þess að gefa eftir. Hún sameinar mikinn styrk, mikla teygju og framúrskarandi viðloðun í einni og sömu vörunni.

Flokkar: , ,